Yfirlýsing sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegan dag sjálfstæðs dómsvalds

Hinn 9. janúar 2026 gaf sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um sjálfstæði dómara og lögfræðinga, Margaret Satterthwaite, út yfirlýsingu varðandi mikilvægi þess að 11. janúar verði gerður að alþjóðlegum degi sjálfstæðs dómsvalds en með þeirri dagsetning er minnst „1000 skikkja göngunnar (1000 Robes March) sem fram fór í Varsjá 11. janúar 2020. Í yfirlýsingunni minnist erindrekinn atburðarins þegar fólk um allan heim varð vitni að áhrifamiklum myndum af stærstu mótmælum dómara í nútíma Evrópu en þennan dag 2020 gengu dómarar frá meira en tuttugu Evrópulöndum til liðs við pólska dómara og þúsundir borgara um götur Varsjár til að mótmæla lögum sem ógnuðu að grafa undan sjálfstæði dómsvaldsins en yfirlýsinguna má sjá hér:

https://www.ohchr.org/sites/default/files/documents/issues/ijudiciary/statements/20260108-1000-robes-march-stm-en.pdf

Previous
Previous

IAJ berst fyrir því að 11. janúar verði alþjóðlegur dagur sjálfstæðs dómsvalds

Next
Next

Aðalfundur Dómarafélags Íslands 2026