Fundur EAJ í Yerevan í Armeníu 8.-10. maí 2025
Fyrri ársfundur Evrópudeildar IAJ (EAJ) 2025 var haldinn í Yerevan í Armeníu dagana 8. til 10. maí 2025. Fulltrúar Dómarafélags Íslands á fundinum voru formaður félagsins Kristbjörg Stephensen og Arnaldur Hjartarson varaformaður.
Á fundinum voru meðal annars samþykktar ályktanir varðandi Grikkland, Ítalíu, Tékkland og Ungverjaland og ályktun um mikilvægi efnahagslegs sjálfstæðis dómara en þessar ályktanir má finna hér:
https://www.iaj-uim.org/iuw/statements-adopted-during-the-eaj-meeting-in-yerevan/
Þá samþykkti fundurinn jafnframt að senda bandarískum dómurum bréf þar sem lýst var yfir samstöðu með þeim. Hlekk á bréfið má finna hér:
https://www.iaj-uim.org/iuw/eaj-letter-of-solidarity-to-the-judges-in-the-usa/